SÚKKULAÐIHNETUSMJÖR
HRÁEFNI
- 100 g heslihnetur
- 2 matskeiðar hrásykur (eða 1 msk og þá 3 msk agave)
- 2 matskeiðar agave síróp
- 1 teskeið vanillusykur, lífrænn
- 2½ matskeiðar kakó, helst lífrænt/fair-trade
- 3½-4 matskeiðar kókosolía (ef í föstu formi er gott að láta krukkuna standa í skál með heitu vatni fyrir notkun)
AÐFERÐ
- Byrjið á því að þurrrista heslihneturnar á pönnu. Það gæti tekið góðar 10 mínútur að fá hýðið til að losna. Kælið svo hneturnar og nuddið hýðið af með fingrunum, svona eins og hægt er
- Fínmalið hneturnar í matvinnsluvél eins vel og þið getið. Það getur verið ágætt að stöðva vélina á einhverjum punkti og rétt aðeins hræra í hnetunum með sleikju, haldið svo áfram að láta vélina ganga
- Bætið öllu öðru hráefni út í (byrjið með 3½ msk af kókosolíu) og látið vélina vinna vel. Ef þið notið útgáfu með minna af hrásykri og meira agave þá skulið þið byrja með 3 msk af kókosolíunni
PS. Ég er enn að tilraunast með útgáfu með silkimjúkri áferð (líklega þarf ég aðra matvinnsluvél því mín vinnur ekki nógu vel á hnetunum) og lofa að deila henni með ykkur þegar ég er orðin sátt.