NÚÐLUSÚPA MEÐ KJÚKLINGI OG GRÆNMETI
HRÁEFNI
- 3 lítrar vatn
- 4 kjúklingateningar, lífrænir
- 3 stórir hvílauksgeirar, fínsaxaðir
- engifer (15-20 g), fínsaxað
- 5-6 gulrætur, fyrst sneiddar nokkuð gróft og hver hluti skorinn langsum í fernt
- 1 blaðlaukur, einungis græni hlutinn notaður og skorinn í ca. 2 cm langar sneiðar, eða græni hlutinn af einu vorlauksbúnti
- 300-400 g kjúklingur, skorinn í frekar smá bita
- 200-275 g núðlur (veltur á þykkt núðlanna)
AÐFERÐ
- Sjóðið vatnið í stórum potti með loki (til að flýta fyrir má sjóða vatnið fyrst í hraðsuðukatli)
- Bætið kjúklingateningunum út í ásamt fínsöxuðum hvítlauk og engifer (ef þið eigið ekki gæða teninga þá má nota það sem ég kalla venjulega en þá þarf rétt aðeins að salta líka með sjávarsalti)
- Bætið svo sneiddum gulrótum og blaðlauk/vorlauk út í og látið malla í 5 mínútur með loki
- Bætið kjúklingabitunum út í og sjóðið súpuna í 8-10 mínútur til viðbótar með loki
- Það fer eftir því hvernig núðlur þið notið en yfirleitt þarf ekki að sjóða núðlur nema í ca. fjórar mínútur. Bætið núðlunum út í ca. 4-5 mínútum áður en kjúklingurinn er tilbúinn
- Berið súpuna fram með chilli-mauki og sítrónubitum til að kreista út í. Ef þið viljið meira engifer þá getið þið að sjálfsögðu notað meira í súpuna sjálfa eða borið það fram ferskt og rifið
PS. Við erum fimm og yfirleitt náum við svona nokkurn veginn að klára upp úr pottinum, enda eru börnin dugleg að borða. Núðlusúpur geymast ekki vel og því finnst mér best að veiða kjúklinginn og gulræturnar upp úr pottinum ef það verður afgangur. Það má svo steikja þetta tvennt daginn eftir upp úr sojasósu og bera fram með núðlum eða grjónum.