Þessi einfaldi réttur hefur verið í uppáhaldi hjá mér í mörg ár, einn af þessum sem mér finnst gott að borða í hádegismat. Hann er að finna í matreiðslubók sem var gefin út af Kripalu jógastöðinni í Bandaríkjunum fyrir löngu síðan en ég hef eitthvað breytt hlutföllunum: Ég hef t.d. minnkað magn kjúklingabauna (nota magn úr 1 dós) því það átti að leggja þær í bleyti og sjóða og mér fannst of mikið af þeim. Kosturinn við þennan rétt er sá að það tekur stuttan tíma að undirbúa hann og svo er hann bara í ca. 10 mínútur á pönnunni. Hann er því kjörinn á dögum þegar maður hefur lítinn tíma til að stússast í eldhúsinu en vill samt fá eitthvað hollt og gott í kroppinn. Yfirleitt ber ég hann fram með basmati hrísgrjónum en mér finnst hann líka góður með naan brauði eða chapati (indverskt flatbrauð - lofa uppskrift að því fljótlega), auk þess er hann kjörinn sem meðlæti. Það eru engin sterk krydd í þessum þannig að hann er barnvænn og ekkert ögrandi að til að bera á borð fyrir þá sem eiga það til að fussa og sveia yfir framandi eldamennsku.
KJÚKLINGABAUNIR MEÐ PAPRIKU
HRÁEFNI
- 1 dós kjúklingabaunir
- 1 græn paprika
- ½ matskeið góð olía
- 1 teskeið sinnepsfræ
- 1 teskeið mulið túrmerik
- 1 teskeið mulinn kóríander
- ½ teskeið gott karrí
- 1 matskeið tómatmauk
- 1-1½ matskeið sítrónusafi, nýkreistur
- 2 matskeiðar gott hunang (má líka nota agave en notið þá eilítið meira af því)
- 1 teskeið fínt sjávarsalt
AÐFERÐ
- Byrjið á því að skola kjúklingabaunirnar í sigti og látið þær liggja í sigtinu þar til þið þurfið að nota þær
- Fræhreinsið paprikuna og skerið í bita
- Blandið saman öllum kryddum nema sinnepsfræjunum í litla skál. Hafið matskeiðina með tómatmaukinu tilbúna og kreista safann sem þið þurfið úr sítrónunni því hlutirnir gerast hratt á pönnunni þegar sinnepsfræin byrja að poppa
- Hitið olíuna á pönnunni og bætið sinnepsfræjunum út í
- Um leið og sinnepsfræin byrja að poppa á pönnunni þá bætið þið kryddblöndunni út í ásamt tómatmaukinu, sítrónusafanum, hunanginu, paprikunni, kjúklingabaununum og saltinu
- Blandið þessu saman og látið malla á miðlungshita í 7-10 mínútur