BLÁBERJAMÖFFINS
HRÁEFNI
- 1½ bolli spelti (1 bolli = 250 ml)
- 2 teskeiðar vínsteinslyftiduft
- ½ teskeið sjávarsalt, fínt
- 50 g möndlur, saxaðar (ég nota með hýði)
- 1 (hamingju)egg
- 1 eggjahvíta
- ½ bolli hrásykur (100 g)
- ½ matskeið agave eða hreint hlynsíróp
- ⅓ bolli sojamjólk (+ 1 matskeið ef þarf)
- 2½-3 matskeiðar eplamauk (notið lífrænt eða gerið ykkar eigið, sjá neðar)
- 100 g frosin bláber + ½ matskeið hrásykur
Hugmyndin að innihaldi eplamauksins kemur frá (Cafe)Sigrúnu en á vefnum hennar er að finna hollar og góðar uppskriftir fyrir smábörn. Ég náði 2½ msk úr því hráefni sem ég notaði (ég notaði frekar lítið epli sem var ca. 110 g áður en ég afhýddi það):
1 epli, afhýtt og skorið í bita (kjarni ekki notaður) ½ teskeið sojamjólk/léttmjólk ½ teskeið kókosolía (látið krukkuna standa í skál með heitu vatni fyrir notkun)
AÐFERÐ
- Setjið bláberin í litla skál, hrærið ½ msk af hrásykri út í og látið þiðna á borðinu í 7 mínútur eða svo. Setjið skálina svo strax aftur í frysti og geymið þar uns þið notið bláberin í deigið (þið getið þess vegna gert þetta deginum áður til að undirbúa baksturinn)
- Ef þið gerið ykkar eigið eplamauk (mjög auðvelt) þá byrjið þið á því að gufusjóða eplabitana í 6 mínútur, setjið þá svo í djúpa skál ásamt ½ tsk af mjólk og kókosolíu og notið töfrasprota til að mauka (það má líka alveg stappa vel með gaffli)
- Blandið þurrefnum saman í stórri skál
- Saxið möndlur í matvinnsluvél og blandið saman við þurrefnin (ég saxa þær mjög vel þannig að hluti þeirra verður nánast að mjöli)
- Blandið eggi, eggjahvítu, hrásykri, agave, mjólk og eplamauki saman í skál og hrærið létt saman, hellið svo blöndunni í skálina með þurrefnunum og bara rétt veltið deiginu þar til hráefnin hafa blandast saman. Deigið á að vera létt í sér og því á alls ekki að hræra mikið. Ef ykkur finnst þurfa, bætið þá 1 msk af mjólk
- Takið sykruðu bláberin úr frysti og notið sömu aðferð til að blanda þeim rólega saman við deigið, bara „fold them in,“ eins og Kanarnir segja
- Smyrjið silíkonmöffinsform með smá kókosolíu áður en deigið fer í formin (12-14 stykki). Þið getið ekki notað pappírsform fyrir þessa uppskrift þar sem hún inniheldur litla fitu
- Bakið við 200°C á blæstri í 20-23 mínútur
Þar sem ég er nýbúin að setja saman þessa uppskrift þá á ég líklega eftir að leika mér með hana, ekki grunnuppskriftina þó. Ég á við valmöguleika sem má alveg sleppa og ef þeir koma vel út þá bæti ég þeim inn síðar meir.