GRÆNMETIS- OG TÓMATSÚPA
HRÁEFNI
- 1 laukur
- 2 blaðlaukar eða vorlauksbúnt (ekki nota græna hlutann)
- 2 stór hvítlauksrif
- 1½ matskeið extra virgin ólífuolía
- 1 stór gulrót
- 1 rauð paprika
- 1½ lítri vatn
- 2½ gerlaus grænmetisteningur
- 2 dósir tómatar (helst flysjaðir tómatar)
- ½ teskeið paprikuduft
- ½ teskeið mulinn kóríander
- 2 teskeiðar ítölsk kryddblanda
- 1 teskeið sjávarsalt
AÐFERÐ
- Byrjið á því að skera lauk og grænmeti og léttsteikið laukinn og blaðlaukinn í olíunni í sæmilega stórum potti
- Bætið hvítlauk og restinni af grænmetinu út í þegar laukurinn er aðeins byrjaður að mýkjast og haldið áfram að léttsteikja
- Bætið því næst vatninu, grænmetisteningunum og tómötunum út í, blandið vel saman og stillið á hæsta hita
- Kryddið og bíðið eftir að suðan komi upp
- Látið súpuna malla í 30 mínútur á meðalhita
- Maukið súpuna rétt aðeins með töfrasprota, þó ekki svo mikið að hún verði eins og ungbarnamatur (þið getið líka sett hana í smá skömmtum í ýmist blandara eða matvinnsluvél en þá þarf að kæla hana áður)