SÚKKULAÐIBITAKÖKUR
HRÁEFNI
- 10 döðlur, steinlausar (leggið í bleyti í 30 mínútur)
- 2 matskeiðar agave eða hreint hlynsíróp
- 1 (hamingju)egg
- 75 g hrásykur
- 1-2 teskeiðar vanilludropar (úr heilsubúð)
- 2 matskeiðar lífrænt hnetusmjör (eða heimagert)
- 4 matskeiðar kókosolía (látið krukkuna standa í skál með heitu vatni fyrir notkun)
- 3-4 matskeiðar kakó (sumir vilja örugglega minnka kakómagnið og nota frekar meira af súkkulaðibitum)
- 75 g spelti (hér má líka nota 50 g á móti 50 g af heslihnetum sem búið er að þurrrista, taka hýðið af og mala í spað í matvinnsluvél, ég hef notað malaðar möndlur á móti speltinu líka og það kom mjög vel út
- 1 teskeið matarsódi
- ½ teskeið sjávarsalt, fínt
- 1½ dl af hnetum/möndlum eftir smekk (pecan, cashew, möndlur og hýðislausar heslihnetur eru góð blanda, ég ef líka notað saltlausar hnetur eingöngu)
- 50 g (eða meira) lífrænt dökkt súkkulaði eða mjólkursúkkulaði t.d. frá Green & Black's eða Rapunzel. Veljið semi-sweet (ca. 50%) eða mjólkursúkkulaði ef þið eruð að baka fyrir börn því 70% súkkulaðið er of rammt fyrir þau
- nokkrar valhnetur, hakkaðar (má sleppa en þær gefa góðan keim og eru meinhollar)
- sesamfræ eftir smekk (má sleppa en gera kökurnar bara betri)
AÐFERÐ
- Byrjið á því að skella öllum hnetum/möndlum og súkkulaði í matvinnsluvél og myljið gróft, setjið til hliðar
- Setjið egg, hrásykur, vanilludropa, hnetusmjör og kókosolíu í skál og hrærið saman með pískara, hrærið svo kakóinu rólega saman við
- Hellið vatni af döðlum og setjið þær í matvinnsluvél ásamt agave sírópi og maukið vel, blandið svo döðlumaukinu út í hina blönduna
- Blandið spelti, matarsóda og salti saman í skál og hrærið þessu saman við blönduna, bara rólega með sleif
- Bætið svo hnetum/möndlum/sesamfræjum ásamt súkkulaði út í deigið og hrærið rólega saman við með sleifinni
- Notið skeið (ca. kúfaða teskeið) til þess að raða kökunum á plötu með bökunarpappír
- Bakið við 170°C í blástursofni í 7-9 mínútur (ofnar eru mismunandi en ekki baka þessar of lengi). Ef ég hef kökurnar frekar stórar þá næ ég að gera 24-28 kökur en það má hafa þær minni og gera þá mun fleiri