HEITT SÚKKULAÐI MEÐ VANILLUSYKRI
HRÁEFNI
- 1 lítri mjólk
- 2 matskeiðar hrásykur, lífrænn
- ½ matskeið heimagerður vanillusykur
- 3 matskeiðar gott kakó, helst lífrænt/fair-trade
- hnífsoddur sjávarsalt (má sleppa)
AÐFERÐ
- Hitið mjólkina í potti á meðalhita
- Bætið sykrinum, kakóinu og saltinu út í og hrærið rólega þar til kakóið hefur leyst upp
- Hrærið af og til rólega þar til suðan kemur upp og fjarlægið þá strax af hellunni
- Berið fram með eða án rjóma
HEIMAGERÐUR VANILLUSYKUR
Ég birti „uppskriftina“ mína að heimagerðum vanillusykri fyrr á þessu ári en skrifa hana hér líka upp á þægindi. Það er mjög auðvelt að gera sinn eigin vanillusykur, það eina sem þarf er hrásykur og vanillustöng.
Kljúfið vanillustöngina í tvennt: skerið í gegnum hana miðja með beittum hníf, og skafið kjarnann úr henni með hnífsoddinum. Setjið lífrænan hrásykur í glerkrukku (með loki) ásamt kjarnanum og vanillustönginni sjálfri. Það þarf ekki að setja kjarnann í krukkuna heldur er nóg að setja bara vanillustöngina sem búið er að skera í tvennt og skafa úr. En ég nota kjarnann, mér finnst það skemmtilegra og það gefur enn meira vanillubragð.