Ég fæ seint afreksverðlaun fyrir að deila uppskriftum það sem af er þessu ári, en síðan ég uppfærði þessa síðu síðast hef ég bætt þremur uppskriftum á Lestur & Latte. Í gær voru það pizzasnúðar (gerlausir), í október baunapottréttur með karrí og kókosmjólk, sem er ein af mínum uppáhalds haust- og vetaruppskriftum, og í sumar dásamleg óbökuð kaka úr smiðju Ani Phyo sem krakkarnir mínir elska, mjúk valhnetusúkkulaðikaka með hindberjum.
Næsti sunnudagur er hinn fyrsti í aðventu og það sem ég hlakka til. Við erum alltaf með aðventubrönsj alla sunnudaga fram að jólum og fyrir þann fyrsta er heimilið hóflega skreytt: smá jólaskraut, hýasintur og fullt af kertum (jólatréð fer upp fyrstu eða aðra helgina í desember). Núna á sunnudaginn ber ég fram, meðal annars, sænskt fléttubrauð með kardamomu, en það er uppskrift sem ég setti saman í fyrra við miklar vinsældir. Hér eru jólalegar uppskriftir sem ég hef deilt á Lestur & Latte:
• indverskt te (chai latte)
• kryddbrauð
• marengstoppar (og súkkulaðisósa)
• möndlugrautur (risalamande)
• quinoa-búðingur með grískri jógúrt, berjum og ávöxtum
• rabarbaramulningur með berjum
• sænskt fléttubrauð með kardamomu
Og hér þær jólalegu sem eru enn hér á gamla blogginu:
• rósakál m/kastaníuhnetum, beikoni og steinselju
• súkkulaðibitakökur með möndlum og haframjöli
• sætkartöflumús með pekanhnetum
Slökkvið nú á þessum blessuðu farsímum og njótið aðventunnar með bókum, spilum og kósíheitum!